Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Rauðvínið Clancy’s frá Lehmann í Ástralíu er blanda úr þremur þrúgum: Shiraz, Cabernet Sauvignon og Merlot og hefur löngum sýnt sig vera eitt þeirra vína frá Lehmann sem gefur hvað mest fyrir peninginn.

Víndómar

Canepa í Chile var stofnað á fyrri hluta síðustu aldar af ítalskri innfllytjendafjölskyldu frá Genoa og leggur fyrirtækið enn rækt við hinn ítalska uppruna sinn.

Víndómar

Brunello-vínin eru einhver allra bestu vín Ítalíu og Il Poggione er einhver besti framleiðandi Brunello-vína. Það var í hópi þeirra fyrstu sem hóf framleiðslu á Brunello en það vill oft gleymast að þessi vínstíll þróaðist ekki fram fyrr en upp úr miðri síðustu öldu.

Víndómar

rúguna Pinot Gris þekkja margir frekar undir ítalska heitinu Pinot Grigio og sumir jafnvel undir hinu þýska Grauer Spatburgunder. Þetta hvítvín er hins vegar nýsjálenskt en Vicar’s Choice er ein af línunum frá vínhúsinu St. Clair.

Víndómar

Cariñena er svæði innan vínhéraðsins Aragon í norðausturhluta Spánar og hafa vín þaðan verið að vekja athygli alþjóðlega fyrir gæði og verð.

Víndómar

Chateau Goumin er eitt af vínhúsunum í eigu André Lurton, en Lurton fjölskyldan er ein sú þekktasta í Bordeaux-héraðinu í Frakklandi og á þar mörg þekkt – og minna þekkt – víngerðarhús.

Víndómar

Þetta þriggja lítra box er rauðvín frá spænska vínhúsinu Marques de Riscal, sem er þekkt fyrir Rioja-vín sín. Riscal 1860 er fyrsta vínið sem fyrirtækið framleiðir utan Rioja en þetta vín er úr þrúgum af svæðinu Castilla y Leon.

1 2 3 4 5 6 57