Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum.
Jafnvel eru ferðaskrifstofur farnar að koma með erlenda gesti í vínkjallarann og hefur það vakið mikla lukku.
Vínlisti Holtsins á sér langa og mikla sögu og hefur alla tíð verið langur og vandaður. Það var hins vegar í byrjun aldarinnar sem að markvisst var farið að kaupa inn vín frá Bordeaux með það að markmiði að öll vín sem flokkuð voru sem Grand Cru Classé í hinni frægu flokkun frá 1855 skyldu fáanleg. Það markmið náðist árið 2003.
Síðan hafa einhverjar glufur myndast enda aðgengi að þessum vínum mismikið. Alltaf hefur þó verið keypt inn reglulega til að halda kjallaranum við og var til að mynda keypt nokkuð af hinum magnaða árgangi 2005. Hvert sem litið er má sjá þekkt Chateau-nöfn, til dæmis Latour, Mouton, Haut-Brion og Yquem. Þá er að finna gott úrval af Búrgundarvínum, ítölskum og spænskum vínum auk Nýjaheimsvína.
Guðlaugur Siggi Hannesson vínþjónn segir að það séu bæði íslenskir sem erlendir gestir sem sæki í bestu vínin en útlendingunum þyki verð þeirra mjög hagstætt. Það er mikil kúnst að halda utan um vínkjallara sem þennan og þá ekki síst að passa upp á að góðir árgangar klárist ekki áður en þeir ná kjörþroska. Þá geti verið erfitt að sjá eftir síðustu flöskunni af góðu víni.
Góð Bordeaux-vín þurfa í mörgum tilvikum að bíða í allt að áratug eða lengur áður en þau toppa en ung geta þau verið lokuð og hörð.
Á myndinni má sjá vínþjóna Holtsins þá Andrés Pál Júlíusson, Guðlaug Sigga Hannesson, Marco Silva og Svein Sveinsson. Á myndina vantar Ölbu Valdimarsdóttur, vínþjón, sem nýlega hóf störf á Gallery Restaura