Víking Classic er ný viðbót í Viking fjölskylduna, hann er með meiri fyllingu og dekkri lit en hinn hefðbundni ljósi lager bjór. Hann er bruggaður úr pilsner malti en að auki eru notaðar í hann þrjár gerðir af dekkra malti sem gefa ölítinn sætukenndan karamellukeim í bragðið, auk hins ljós-rauðbrúna litar. Hann er létt humlaður og með væga beiskju sem leyfir maltinu að njóta sín.
Classic nafnið kemur til af því að svona bjór þykir líkur bjór eins og algengur var á seinnihluta 19 aldar. Stíllinn hefur gengið í endurnýjun lífdaga á síðustu árum og hefur náð nokkrum vinsældum til að mynda í Danmörku en þangað mun fyrirmyndin að Viking Classic sótt.