Orecchiette mætti þýða sem litlu eyrun en þessi pastategund er dæmigerð fyrir héraðið Púglía allra syðst á Ítalíuskaganum. Það hentar mjög vel með margs konar pastasósum þar sem „litli eyrun“ eru einstaklega lúnkin við að fiska upp sósuna.
Sósan með þessu kjúklingapasta er unaðsleg Miðjarðarhafsblanda – sítrónur og rósmarín auk rjóma sem gefur sósunni mýkt og þykkt. Það er hægt að skerpa á sítrónubragðinu með því að draga úr rjómanum og sömuleiðis milda það með því að auka rjómamagnið.
- 600 g beinlaust kjúklingakjöt, s.s. bringur, lundir eða læri, skorið í bita
- 500 g Orecchiette-pasta
- 1 sítróna, börkurinn rifinn og safinn pressaður
- 2,5 dl kjúklingasoð (kraftur og vatn)
- 2 dl rjómi
- 1-2 vænar matskeiðar af söxuðu fersku rósmarín
- 4-5 hvítlauksgeirar, saxaðir
- hveiti
- olía og smjör
- salt og pipar
Skerið kjúklingin í litla bita og veltið þeim upp úr hveiti.
Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum.
Hitið olíu og smjör saman á pönnu. Setjið hvítlauk kjúklingabitana á pönnuna og brúnið á öllum hliðum, 2-3 mínútur. Hellið kjúklingasoðinu á pönnuna ásamt rósmarín, sítrónusafanum og fínt rifnum sítrónuberkinum. Látið malla á pönnunni þar til að vökvinn hefur soðið niður um ca helming. Bætið rjómanum út á og látið malla þar til að sósan er farin að þykkjast. Það er gott bæta örlitlu af pastasoðinu út í sósuna. Bragðið til með salti og pipar.
Berið fram með nýrifnum parmesanosti eða Grana Padano.