Topp tíu – grillaður kjúklingur
Kjúkling er hægt að undirbúa fyrir grillið með margvíslegum hætti. Hér eru tíu frábærar uppskriftir að grilluðum kjúkling á mismunandi vegu.
Kjúkling er hægt að undirbúa fyrir grillið með margvíslegum hætti. Hér eru tíu frábærar uppskriftir að grilluðum kjúkling á mismunandi vegu.
Það sækja flestir matreiðslumenn hugmyndir og innblástur til annarra og nýjar hugmyndir fara yfirleitt eins og eldur um sinu. Það brá hins vegar mörgum þegar í ljós kom að einn af þekktari veitingastöðum Austurríkis var nákvæm eftirlíking af sænsku veitingahúsi.
Það er afskaplega sumarlegt að sötra góða kokkteila og þó svo að íslenska sumarið bjóði kannski ekki upp á að setið sé undir pálmatrjám við sundlaugarbakka er enginn ástæða til þess að láta það aftra sér.
Dýrasta kampavínsflaska sögunnar var slegin á uppboði á Álandseyjum síðastliðinn föstudag. Um var að ræða flösku af Veuve Clicquot-kampavíni árgerð 1841 sem fannst í skipsflaki á síðastliðnu ári. Flaskan var sleginn á 30 þúsund evrur eða um fimm milljónir króna.
Það fyrsta sem blasir við manni þegar gengið er að Kolabrautinni á fjórðu hæð Hörpunnar er veglegur kokkteilbar þar sem gestir geta setið og notið útsýnisins við höfnina. Líklega hefur sjaldan ef þá nokkurn tímann verið lagt jafnmikið í kokkteilbar hér á landi.
Donald Hess, sem á síðustu áratugum hefur byggt upp mikið veldi gæðavínframleiðenda í fimm heimsálfum, hefur tilkynnt að hann hyggist draga sig í hlé sem forstjóri Hess-fyrirtækisins í lok júní.
Fyrsti veitingahúsavísirinn, sem gefinn hefur verið út um veitingahús á Norðurlöndunum, kom út í síðustu viku í Danmörku en í honum er að finna lista yfir 66 bestu veitingahús Norðurlanda auk þeirra sem næst komust því að lenda á listanum.
Það höfðu margir miklar efasemdir þegar Spánverjar settu á laggirnar sína eigin vínsýningu fyrir tíu árum undir nafninu Fenavin. Hún hefur hins vegar náð rækilega að festa sig í sessi. Sýningin var í vikunni haldinn í fimmta skipti í borginni Ciudad Real á Mið-Spáni og sóttu hana þúsundir framleiðenda, vínkaupenda og blaðamanna.
Norræna nemakeppnin í matreiðslu og framleiðslu var haldin í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi á dögunum. Fyrir Íslands hönd kepptu þeir Hafsteinn Ólafsson frá Vox og Birkir Örn Sveinsson frá Fiskifélaginu í matreiðslu en þær Esther Jakobsdóttir frá Einari Ben og Inga Dóra Snorradóttir frá Hótel Loftleiðum í framreiðslu.
Chianti-rauðvínið Da Vinci fékk á dögunum viðurkenningu hjá Gambero Rosso sem eitt þeirra Chianti-vína með besta hlutfall verðs og gæða.