Uppáhaldsréttunum fagnað
Það eru 40 þjóðþekktir Íslendingar sem leggja til uppskriftir í bókina Uppáhaldsrétturinn minn og því kannski ekki furða að mörg þekkt andlit hafi sést í útgáfuhófi sem haldið var í Þingholti á fimmtudagskvöld.
Það eru 40 þjóðþekktir Íslendingar sem leggja til uppskriftir í bókina Uppáhaldsrétturinn minn og því kannski ekki furða að mörg þekkt andlit hafi sést í útgáfuhófi sem haldið var í Þingholti á fimmtudagskvöld.
Kvölddagskrá til heiður John Lennon verður í Viðeyjarstofu fjögur kvöld í október og nóvember. Það eru Gallery Restaurant á Hótel Holti og Elding hvalaskoðun sem standa fyrir dagskránni.
Matarleikhús verður sett upp í Norræna húsinu daga 23. til 30 október. Sýnt verður verkið Völuspá – A Nordic Food Expedition sem er samstarfsverkefni leikhússins Republique í Kaupmannahöfn, Norræna hússins og Dill veitingastaðar.
Rauðvínið frá Bodegas Roda í Rioja á Spáni vann á dögunum viðurkenningu hjá Decanter, helsta víntímariti Bretlands, sem besta spænska rauðvínið í verðflokknum yfir tíu pund og jafnframt sem besta „alþjóðlega“ vínið unnið úr spænskum þrúgum.
Fulltrúar fjölmargra erlendra vínfyrirtækja frá öllum heimshornum kynntu vín sín á vínsýningu Haugen Gruppen á Hilton fimmtudaginn 8. september en fyrirtækið hefur verið að stórefla úrval sitt á síðustu misserum.
Stór og mikil vínsýning verður haldin á Nordica Hilton 8. september næskomandi á vegum Haugen-Gruppen. Þar verða meðal annars kynnt léttvín frá á þriðja tug framleiðenda og verða fulltrúar frá níu erlendum vínhúsum á staðnum til að fræða gesti um vín sín og leiða í gegnum úrvalið.
Það bætast reglulega við spennandi nýjir bjórar í úrval vínbúðanna. Sumir þeirra gamlir kunningjar. Nýlega komu t.d. í sölu tveir af betri hveitibjórunum sem fáanlegir eru.
Veitingastaðurinn La Primavera í Austurstræti hefur hætt rekstri. Tækjakostur og búnaður hefur verið seldur nýjum eigendum en veitingastaðnum hefur verið lokað. Eigendur La Primavera eru hjónin Leifur Kolbeinsson, matreiðslumeistari og Jónína Kristjánsdóttir, framreiðslumaður. Þau opnuðu veitingastaðinn Kolabrautina í tónlistarhúsinu Hörpu í byrjun sumars.
Reyka Vodka sem framleitt er í Borgarnesi vann til gullverðlauna (Best in Class) hjá International Wine and Spirits Competition.
Þeir Juan Ignacio Torre og Tomas Urdapillata, sem eru annars vegar útflutningsstjóri og hins vegar svæðisstjóri, hjá Trivento í Argentínu komu hingað til lands í síðustu viku til að fara yfir stöðuna á íslenska markaðnum en Trivento er einmitt mest selda argentínska vínið á Íslandi.