Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Þetta hvítvín frá Canepa kemur frá Limari í Chile. Þetta er með nyrstu víngerðarsvæðum landsins og hefur verið að ryðja sér til rúms síðustu árin.

Víndómar

Það er um hálfur áratugur frá því að þau Marc og Elvezia hjá A Mano kynntu fyrsta hvítvínið sitt. Það er gert úr tveimur suður-ítölskum þrúgum, annars vegar Fiano og hins vegar Greco di Tufo.

Víndómar

ampavínshúsið Ayala er ekki stórt en hefur löngum verið talið með þeim betri í bænum Ay í Champagne. Raunar það gott að nágranninn Bollinger ákvað fyrir nokkrum árum að kaupa húsið. Það hefur óneitanlega haft áhrif á stíl vínanna, sem eru orðinn þroskaðri og tignarlegri.

Víndómar

Rioja á Spáni er fyrst og fremst rauðvínshérað. Þar eru hins vegar einnig ræktuð nokkur virkilega athyglisverð og góð rauðvín hjá betri vinhúsunum.

Víndómar

Nafnið á þessu hvítvíni má rekja til Leonardo da Vinci líkt og nöfn margra annarra vína frá vínsamlaginu Cantina Leonardo í Toskana á Ítalíu en þetta er eitt af millinöfnum meistarans þótt það sé sjaldan notað.

Víndómar

Franck Millet er lítið vínhús í Sancerre í Loire-dalnum í Frakklandi sem ræktar þar vín á 22 ekrum. Sancerre eru hin klassísku, upprunalegu Sauvignon Blanc-vín, sem margir aðrir vínræktendur um allan heim nota sem fyrirmynd þegar þeir rækta þessa þrúgu.

1 17 18 19 20 21 57