Morande Gran Reserva Syrah 2007
Þegar vín úr Syrah eru góð þá eru þau hrikalega góð og vínræktendur í Chile eru margir farnir að ná fantagóðum tökum á henni.
Þegar vín úr Syrah eru góð þá eru þau hrikalega góð og vínræktendur í Chile eru margir farnir að ná fantagóðum tökum á henni.
Púglía syðst á Ítalíu sem við sáum lítið af þegar vín voru annars staðar. Það hefur breyst enda hafa margir víngerðarmenn séð þá miklu möguleika sem héraðið býður upp á.
Vínhúsið El Coto er leiðandi á spænska markaðnum fyrir Riojavín þó að það eigi sér ekki langa sögu. Það var ekki fyrr en á síðari hluta síðustu aldar sem að framleiðsla undir merkjum hófst.
Líkt og nafnið gefur til kynna eru þrúgurnar sem notaðar eru í þetta austurríska hvítvín frá Brundlmayer ræktaðar á sillum í hinum bröttu hlíðum við bakka Dónár.
A Mano var eitt fyrsta rauðvínið frá Púglía sem hér náði fótfestu og stendur enn fyrir sínu og vel það. Þrúgan Primitivo er ríkjandi í rauðvínum frá þessu héraði á suðausturodda Ítalíu, hælnum á stígvélinu.
La Vieille Ferme er rauðvín frá Ventoux í suðurhluta Rhone-dalsins í Frakklandi en til skamms tíma gekk þetta víngerðarsvæði undir nafninu Cotes du Ventoux. Þetta er dæmigert suður-franskt vín hvað þrúgusamsetninguna varðar eða blanda úr Grenache, Cinsault og Syrah. Sumarið 2009 var mjög heitt og þurrt á þessum slóðum og vínþrúgurnar náðu mjög góðum þroska.
Vín þurfa ekkert að vera alvarleg sem endurspeglast í nafni þessa vín. Plaisir Frivole má snara yfir á íslensku sem kærulaus eða áhyggjulaus ánægja og þetta vín er einhvern fullt af sumarlegri gleði.
Vín sem kallar sig Jam Jar eða „sultukrukkann“ er ekki að taka sig mjög hátíðlega. Það er líka mikið af því sem Bretar myndu kalla „tongue in cheek“ við þetta vín, eða að minnsta kosti sniðug markaðssetning. Sætur, suður-afrískur Shiraz í flösku sem minnir á sultukrukku.
Þetta hvítvín er frá Chile úr smiðju Bodegas Emiliana, sem er einn stærsti framleiðandi lífrænna vína í heiminum.
Muré-fjölskyldan er með rótgrónustu vínræktendum í Alsace í Frakklandi, hefur ræktað vín þar frá því um miðja sautjándu öld. Hún hefur aðsetur sitt í Rouffach suður af Colmar og er aðalsmerki hennar stílhrein og vönduð vín þar sem sérkenni hverrar þrúgu njóta sín til fulls.