Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Paolo de Marchi hefur um langt skeið verið með virtustu víngerðarmönnum Ítalíu vegna vínbúgarðsins Isole e Olena í Chianti í Toskana. Hann kom hingað haustið 2007 og gafst þá meðal annars kostur á að smakka fjölmarga árganga af Cepparello, þekktasta víni hans. Rætur fjölskyldunnar eru hins vegar í Piedmont á Norður-Ítalíu og fyrir nokkrum árum lét Paolo drauminn um að stunda vínrækt á slóðum forfeðranna rætast.

Víndómar

Amadio Fasoli lagði grunninn að vínhúsinu Fasoli Gino er hann hóf vínrækt í Veneto á Ítalíu árið 1925. Þriðja kynslóðin hefur nú tekið við rekstrinum og er áherslan á vönduð, lífrænt ræktuð vín en allar ekrur fjölskyldunnar hafa verið í lífrænni ræktun frá 1984.

Víndómar

Lígúría er lítið víngerðarhérað við Genóaflóa á Norðvestur-Ítalíu sem er þekkt fyrir frammúrskarandi hvítvín m.a. úr þrúgunum Pigato og Vermentino. Vín frá Lígúriu hafa hins vegar vart verið fáanleg á Íslandi fram að þessu.

Víndómar

Paolo de Marchi hefur aldrei hikað við að fara ótroðnar slóðir með vínin sín frá Isole e Olena. Chardonnay-hvítvínið hans er yfirleitt flokkað með bestu hvítvínum Ítalíu og hann hefur nú tekið það róttæka skref að tappa víninu á flöskur með skrúfutappa, að minnsta kosti að hluta.

Víndómar

Vínsamlagið Cantine Leonardo er staðsett í bænum Vinci í Toskana og dregur nafn sitt af frægasta syni bæjarins í gegnum aldirnar.

Víndómar

Þetta Cotes-Du-Rhone Villages vín frá Louis Bernard er dæmigert fyrir héraðið, þrúgan Grenache er ríkjandi og víngerðarmönnum Louis Bernard hefur tekist ágætlega upp í erfiðu ári, sem kom á milli tveggja stórkostlegra árganga, 2007 og 2009.

Víndómar

Gran Reserva-vínin frá Rioja eru þau sem hafa verið geymd lengst, fyrst á eikartunnum og síðan flösku áður en að þau eru loks sett á markað.

Víndómar

Pouilly-Fuissé eru hvítvín frá suðurhluta héraðsins Bourgogne í Mið-Frakklandi og þótt það sé ekki tekið fram eru þetta hreinræktuð Chardonnay-vín.

1 18 19 20 21 22 57