Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Þrúgan Pinot Noir er duttlungafull og hún dafnar á fáum stöðum utan heimahaga sinna í Búrgund í Frakklandi. Það eru þó einstaka undantekningar á því, ekki síst hefur Nýsjálendingum tekist að ná einstaklega góðum tökum á ræktun Pinot Noir.

Víndómar

Þetta vín frá Montepulciano ber ekki mikið yfir sér, flaskan gefur til kynna að um frekar ódýrt vín sé að ræða og verðmiðinn staðfestir það.

Víndómar

Peter Lehmann var einn af frumkvöðlunum í ræktun Riesling-þrúgunnar í Barossa-dalnum í Suður-Ástralíu. Þótt að aðstæður þar séu mjög frábrugðnar þeim við Rín hefur þessi norður-evrópska þrúga plummað sig ótrúlega vel í áströlsku sólinni.

Víndómar

Í hjarta Chianti-svæðisins í Toskana er að finna lítið þorp sem heitir Vinci og er óhætt að fullyrða að þekktasti sonur þorpsins sé lista- og vísindamaðurinn Leonardo sem uppi var á sextándu öld.

Víndómar

Ardales er lífrænt ræktað Tempranillo-vín frá vínhúsinu Bodegas Arúspide. Þetta er vín frá spænsku hásléttunni á svæðinu Tierra de Castilla suður af Madrid.

Víndómar

Pinot Grigio-þrúgan er ræktuð víða undir ýmsum nöfnum og getur tekið á sig ýmsar myndir. Ítölsku vínin úr þessari þrúgu eru þegar vel lætur þægileg og full af ítalskri lífsgleði.

Víndómar

Þetta vín frá Zaccagnini í Abruzzo á Mið-Ítalíu er sprækt og heillandi en þrúgan er hin ítalska Pecorino.

Víndómar

Pacific Rim Winery er bandarískt vínhús sem sérhæfir sig nær einvörðungu í framleiðslu á hvítvínum úr Riesling-þrúgunni. Það var stofnað 1992 og upphaflega komu þrúgurnar héðan og þaðan. Síðustu árin eru hins vegar einvörðungu notaðar lífrænt ræktaðar þrúgur frá Washington-ríki.

Víndómar

Bernard Defaix stofnaði vínhús sitt árið 1959 og átti þá tvo hektara af vínekrum í Chablis. Þeim hefur fjölgað í gegnum árin og Defaix framleiðir nú vín jafnt frá Chablis sem Rully sunnar í Bourgogne.

1 22 23 24 25 26 57