Pepperoni-pylsurnar eru vinsælar á pizzur en það má nota margt annað. Spænskar chorizo-pylsur, sem fást nú í flestum stórmörkuðum, eru til dæmis tilvaldar sem pizzuálegg og gefa bökunum svolítið öðruvísi blæ.
Bresk matargerð er ekki sú þekktasta í heimi og fáar breskar uppskriftir njóta alþjóðlegrar hylli. Einhver breskasta uppskrift sem fyrirfinnst er myntusósan sem að mati Breta er ómissandi með lambakjöti á hátíðisdögum.
Hugmyndin að þessari uppskrift er komin frá norðurhluta Kaliforníu, nánar tiltekið er innblásturinn sóttur til Alice Waters sem jagði grunn að Kaliforníumatreiðslunni með stað sínum Chez Panisse í Berkeley.
Paella er líklega þekktasti réttur Spánar en rétt eins og ítalski ættinginn „risotto“ þá er Paella ekki eitthvað sem er greypt í stein. Það er hægt að útbúa paellu á margs konar hátt og nota jafnt kjöt sem fisk. Það er hægt að nota margvíslegar tegundir af kjöti og sjávarrétum og það er hægt að blanda kjöti og sjávarréttum saman.
Það er ekki sósa með þessu kjöti heldur smjör sem við blöndum sólþurrkuðum tómötum saman við og bráðnar síðan yfir steikinni og kartöflunum. Hvítlaukurinn verður sætur og fínn þegar við grillum hann.
Þessi einfaldi réttur er frá Mörkum eða Marche-héraði á Adríahafsströnd Ítalíu, og þótt fiskitegundirnar í Adríahafinu séu aðrar en þær sem sem við þekkjum við Íslandsstrendur er einfalt að aðlaga réttinn og nota það hráefni sem hér gefst.
Þessi uppskrift kemur frá Kaliforníu í Bandaríkjunum og áhrifin eru héðan og þaðan. Bandaríkjamenn eru mjög hrifnir af ítölskum kryddpylsum og þótt þær séu ekki fáanlegar hér þá björgum við okkur með því að blanda saman kryddum og kjöti líkt og pylsugerðarmennirnir gera.