Villibráðarkvöld í Lava
Nú fer tími villibráðarinnar í hönd líkt og sjá má á tilkynningum sem berast frá veitingahúsunum. Á laugardaginn verður til dæmis villbráðarveisla á veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu
Nú fer tími villibráðarinnar í hönd líkt og sjá má á tilkynningum sem berast frá veitingahúsunum. Á laugardaginn verður til dæmis villbráðarveisla á veitingastaðnum Lava í Bláa lóninu
Ástralska vínfyrirtækið Casella Wines var valið sem “framleiðandi ársins í Nýja heiminum” í vínkeppninni Mundusvini í Þýskalandi á dögunum. Mundusvini er helsta vínkeppni Þýskalands og var að þessu sinni lagt mat á 5726 vín frá 44 löndum.
Það hafa margir víndómar bæst við undanfarna daga og því eru heil átta vín í vínum vikunnar að þessu sinni. Þau eru líka öll evrópsk, fjögur koma frá Ítalíu, þrjú frá Frakklandi og eitt frá Spáni.
Þeir sem skrá sig á póstlista Vínóteksins eiga nú kost á því að vinna sér inn glæsileg verðlaun. Um næstu mánaðamót verður einn heppinn einstaklingur á póstlistanum dreginn út og fær að verðlaunum þrjár flöskur af Peter Lehmann-vínum, Barossa Shiraz, Chardonnay og Riesling.
Öll vínin nema eitt koma frá víngerðarsvæðum sunnan miðbaugs í þessari viku. Þetta eina vín sem sker sig úr er hins vegar verðugur fulltrúi evrópskrar víngerðar, Grand Cru-vín frá St. Emilion í Frakklandi.
Það er töluverður munur á þeirri matreiðslu sem við stundum í heimahúsum og þeirri sem iðkuð er á veitingahúsum. Því er það ávallt spennandi að fá tækifæri til að fá innsýn í reynsluheim matreiðslumeistaranna og kynnast betur þeim aðferðum og “trixum” sem þeir nota.
Bresku ostaverðlaunin eða The British Cheese award voru veitt í Cardiff um síðustu mánaðamót. Breska blaðið The Times greinir ítarlega frá verðlaununum. Svo skemmtilega vill til að þrír af ostunum sem fengu sérstaka viðurkenningu eru nú í sölu hjá Eirnýju í Ostabúrinu í Nóatúni.
Það komu tvö vín frá Chablis í Frakklandi til umfjöllunar í þessari viku, bæði góð en jafnframt mjög ólík. Annað þeirra hefðbundið Chablis frá einum stærsta framleiðanda héraðsins, La Chablisienne Chablis 2006 og hitt frá litlu og framsæknu fjölskyldufyrirtæki.
Það var óneitanlega ekki auðvelt verkefnið sem dómnefndin stóð frammi fyrir í Kahlúa-kökukeppninni sem fram fór á Hótel Borg síðastliðinn laugardag. Hennar beið að bragða á og meta þær fjörutíu kökur sem höfðu borist í keppnina frá bakarameisturum landsins. Kökurnar voru jafnfjölbreyttar og þær voru margar.
Vínin sem fjallað hefur verið um síðustu vikuna koma að venju víða að, í þetta skipti frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Spáni og Ástralíu.