Willm Pinot Gris 2009
Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr.
Vínhúsið Willm er á vínleiðinni eða Route du vin á milli Strassborgar og Colmar í Alsace í Frakklandi, nánar tiltekið í smábænum Barr.
Rónarhéraðið í Suður-Frakklandi er mun þekktari fyrir rauðvínin sín en hvitvínin. Þar eru þó framleidd mörg áhugaverð hvítvín meðal annars úr þrúgunni Viognier.
Vínhúsið Spy Valley hefur verið með þeim mest spennandi á Nýja Sjálandi síðustu misserin. Í byrjun hét vínhúsið Johnson Estate enda stofnað af þeim Bryan og Jan Johnson árið 1993. Árið 2000 breyttu þau hins vegar nafninu í Spy Valley og er nafnið tilkomið vegna njósnastöðvar Bandaríkjamanna, sem er hluti af Echelon-kerfinu, í Wairau dalnum.
Sedara er sikileyskt rauðvín úr þrúgunni Nero d’Avola frá vínhúsinu Donnafugata. Nero d’Avola er meginrauðvínsþrúga Sikileyjar.
Francois d’Allaines er lítill framleiðandi sem stofnaði vínhús sitt árið 1996 í þorpinu Demigny í Búrgund. Hann framleiðir aðallega vín af svæðunum Cote de Beaune og Cote Chalonnaise og hafa vín hans verið fáanleg hér í einhverjum mæli síðustu árin.
Þetta Reserva-vín frá Morandé kemur frá Casablanca-dalnum rétt fyrir norðan Santiago, höfuðborg Chile. Þar eru frábærar aðstæður til hvítvínsframleiðslu.
First Press er lítið vínhús í Napa í Kaliforníu og er eitt af nokkrum vínhúsum í eigu Delicato-fjölskyldunnar.
Árgangurinn 2007 var einhver sá besti í manna minnum í Rhone, ár þar sem allt gekk upp og jafnvel einföldustu vín urðu virkilega góð. Vínanna frá bestu vínhúsunum hefur því verið beðið með mikilli eftirvæntingu og nú fyrir skömmu kom Cotes-du-Rhone vínið frá E. Guigal á markaðinn.
Einhver merkilegasta stofnun suður-afríska víniðnaðarins er Bergkelder. Vínhús og vínkjallari sem byggður var við rætur fjallsins Papegaaiberg skammt frá Stellenbosch. Kjallarar Bergkelder teygja sig inn í fjaliið og eru vinsæll áningarstaður ferðamanna.
Shiraz er sú þrúga sem flestir tengja við Ástralíu og hér er ódýrt og gott Shiraz-vín frá Grant Burge, sem er fjölskylduframleiðandi í Suður-Ástralíu.