Öll þurfum við að nærast, þó að við séum á faraldsfæti, og því ekki að njóta þess í leiðinni. Heimurinn er fullur af spennandi veitingastöðum og hér eru nokkrir þeirra sem hafa staðið upp úr hjá mér á árinu á nokkrum vinsælum áfangastöðum Íslendinga.
Café Gray
Það voru margir sem biðu eftir því með mikilli eftirvæntingu þegar Gray Kunz, sem hafði verið einn rómaðasti matreiðslumaður New York meðan hann starfaði á Lespinasse, ákvað að opna veitingastað í eigin nafni. Staðnum var valin staðsetning í hinni nýju Time-Warner byggingu við Columbus Circle. Ekki slæmt því að úr veitingasalnum er stórkostlegt útsýni yfir Central Park sem hægt er að njóta á milli þess sem fylgst er með því sem fram fer í opnu eldhúsinu. Kunz er hugmyndaríkur, djarfur og skapandi kokkur. Hann hefur sterkar rætur í hinni klassísku frönsku og ítölsku matargerð en hikar þó ekki við að fá að láni hugmyndir, krydd og aðferðir úr asíska eldhúsinu. Þetta er þó enginn „fusion“-staður, þungamiðjan er evrópsk en samt tekst Kunz aftur og aftur að koma gestum á óvart með nýstárlegum brögðum og blöndum.
Café Gray
10 Columbus Circle
Sími: 001 212.823.6338
www.cafegray.com
Kokkeriet
Á Kronprinsessegade rétt við Kongens Have og gulu húsalengjurnar í Nyboden, svona 15 mínútna gangfrá Kongens Nytorv, er að finna eitthvert mest spennandi veitingahús Norðurlanda. Kokkeriet er ekki stór staður, væri svona meðalstaður að stærð í Reykjavík, tekur nokkra tugi gesta í sæti. Þegar inn er komið er yfirbragðið eins og maður hafi óvart ratað inn á svolítið „trendí“ hverfisveitingahús. Maður áttar sig hins vegar fljótlega á því – í síðasta lagi er fyrsti diskurinn mætir á borðið – að þetta er ekkert venjulegt hverfisveitingahús heldur veitingastaður á heimsmælikvarða. Eldhúsið er einfaldlega gífurlega gott, sló hvergi feilnótu, hráefnin í dönskum anda, skelfiskur mikið notaður ásamt sveppum og öðru góðgæti. Hver réttur bragðupplifun og meira að segja skyr í einum eftirréttinum! Danska eldhúsið eins og það gerist best. Ef þið eruð í Kaupmannahöfn er þetta staðurinn ásamt Era Ora.
Kokkeriet
Kronprinsessegade 64
Sími: 0045 33152777
www.kokkeriet.dk
Bagatelle
Á einhverri fegurstu götu Óslóar, Bygdoy Alle, er að finna Bagatelle, veitingastað kokksins Eyvind Hellstrøm, eini staður Norðurlanda sem skartar tveimur Michelin stjörnum sem stendur. Staðurinn er óformlegur og nútímalegur með þægilegum svörtum leðurstólum og fallegri samtímalist á veggjum. Matseðillinn virtist engan endi ætla að taka, alltaf komu nýir og nýir réttir, hver öðrum betri. Matargerðin frönsk, frumleg, fumlaus og fersk. Hráefnin eru í flestum tilvikum norsk og sjávarfangið var þungamiðjan í matseðlinum. Réttirnir einfaldir en líka margslungnir. Kastaníuhnetu- og trufflusúpa var svo góð að maður nánast táraðist. Raviolíkoddar með sveppafyllingu, grænum ertum og hálfu tonni (að minnsta kosti) af ferskum Alba-trufflum ekkert slor. Þjónustan örugg, þægilega óformleg og þannig að maður tekur vart eftir því er glös hverfa af borði og ný hnífapör bætast við. Það ætti enginn að láta Bagatelle fram hjá sér fara. Þetta er veitingastaður sem getur keppt í gæðum við nánast hvaða stað sem er.
Bagatelle
Bygdoy Alle3
Sími: 0047 22121440
www.bagatelle.no
La Cuisine du Joel Robuchon
Joel Robuchon er einn dáðasti kokkur Frakklands og var talinn besti matreiðslumaður landsins á síðari hluta síðustu aldar. Í Frakklandi gerir það menn að þjóðhetjum á svipuðum stalli og bestu íþróttamenn. Hann var krýndur „matreiðslumaður aldarinnar“ af Gault-Millau og meðal þekktra lærlinga hans má nefna Gordon Ramsey. Það var því stórfrétt er hann tilkynnti öllum að óvörum fyrir um einum og hálfum áratug að hann hygðist setjast í helgan stein og lá við að þjóðarsorg yrði lýst yfir í landinu. Veitingastað hans í sextánda hverfi Parísar, sem talinn var sá besti í borginni, var hins vegar ekki lokað heldur fékk hann „ungan og upprennandi“ matreiðslumann að nafni Alain Ducasse til að taka við kyndlinum.
Það liðu hins vegar ekki mörg ár þar til að Robuchon fór á stjá á ný og opnaði veitingastað í Roppongi í Tókýó undir nafninu L’Atelier du Joel Robuchon. Þeir staðir eru nú orðnir átta og má finna í París, London, New York, Mónakó, Hong Kong, Macao og Las Vegas. En þótt um veitingahúsakeðju sé að ræða skyldi það engan blekkja. Robuchon stendur undir nafni og meira en það. Á L’Atelier de Joel Robuchon er blandað saman stílhreinni japanskri hönnun og frönskum klassa. Yfirbragðið verður spennandi, afslappað og maturinn hreinasta unun. Í London mæli ég með La Cuisine de Joel Robuchon sem er á hæðinni fyrir ofan L’Atelier í Covent Garden. La Cuisine er ögn formlegri (þar sitja menn til borðs en ekki á kollum í kringum barborð) og réttirnir eru fleiri og boðið upp á stóran smökkunarmatseðil.
La Cuisine de Joel Robuchon
West Street 13-15
Sími: 0044 207 0108600
www.joel-robuchon.com
Senderens
Annar af virtustu kokkum Parísar síðustu áratugi er Alain Senderens sem í tæpa þrjá áratugi réð ríkjum á þriggja stjörnu staðnum Lucas Carton við Madeleine-torgið. Á síðasta ári lýsti hann því hins vegar yfir að hann væri búinn að fá nóg. Hann nennti ekki að eltast lengur við þær gríðarlegu kröfur sem gerðar eru til staða er vilja halda þremur stjörnum. Þess í stað ákvað hann að umbreyta staðnum og gera hann einfaldari í alla staði. Markmiðið var að viðskiptavinir ættu að geta komið á nýja staðinn – sem einfaldlega fékk nafnið Senderens – og fengið máltíð með öllu fyrir innan við 100 evrur. Lucas Carton var þungur og klassískur staður en Senderens er mun léttari og nútímalegri þó enn glitti í hinar frægu Art Noveau viðarinnréttingar Louis Majorelle. Breytingar á staðnum eru smekklegar og bræða saman gamla glæsileikann og nútímalegan léttleika, áherslan á birtu, mýkt og bogadregnar línur. Matseðilinn er einfaldur og stuttur en hver réttur allt að því fullkominn – og það sem meira er, alls ekkert dýr. Ég dreg í efa að hægt sé að fá betri mat á jafnlágu verði í París og þótt víðar væri leitað. Það væri þá hjá Robuchon.
Senderens
Place de la Madeleine
Sími: 00331 42 65 22 90
www.lucascarton.com