Obsession
Það er spurning hvernig eigi að flokka þennan kokkteil. Amarulatini?
Er þetta kokkteill eða er þetta eftirréttur? Það má nánast deila um það, en góður er hann. 4,5 cl Amarula Cream 3 cl De Kuyper Créme de Menthe 2 ísskeiðar af vanilluís Blandið öllu saman við mulin klaka með töfrasprota eða varlega í matvinnsluvél. Hellið í fallegt glas, jafnvel vínglas. Stráið súkkulaði yfirog skreytið með
Springbok sem þetta skot er nefnt eftir er antílópa og eins konar þjóðardýr Suður-Afríku. 1,5 cl De Kuyper Créme de Menthe 1,5 cl Amarula Cream Hellið í skotglas. Fyrst piparmyntulíkjörinn og svo Amarula Cream varlega ofan á.
Afríka og Karíbahafið saman í einu glasi. 6 cl Amarula Cream 3 cl ljóst romm, Havana Club Anejo Blanco 9 cl ananassafni 3 cl kókosmjólk eða kókosrjómi Blandið öllu saman í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í hátt glas. Skreytið með ananasskífu.
Þetta er ferskur og þykkur kokkteill, sem passar ekki síður eftir mat en fyrir. 6 cl Amarula Cream 3 cl kirsuberjalíkjör, t.d. De Kuyper Wild Cherry 3 cl rjómi Setjið allt í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel og hellið í hátt glas. Skreytið með kirsuberi eða kokkteilberi.
Hér er það finnskur trönuberjavodki sem gegnir lykilhlutverki. 4,5 cl Finlandia Cranberry 6 cl eplasafi 6 cl límónaði Notið highball glas með klaka. Byggið upp drykkinn með því að hella fyrst vodka, þá eplasafa og loks límónaði í glasið. Skreytið með lime-bita.
Þessi kokkteill var sigurdrykkurinn í Finlandia Vodka Cup árið 2008 en höfundur hans var Þorlákur Sveinsson. 3 cl Finlandia Lime 2 cl Pisang Ambion 1,5 cl Bananalíkjör (t.d. De Kuyper Creme de Bananes) 3 cl Ananassafi Setjið í kokkteilhristara ásamt klaka. Hristið vel. Hellið í long drink-glas og fyllið upp með greip. Skreytið með ávöxtum.
4cl Southern Comfort 3cl Lime líkjör Sprite ½ sneið af lime Berið fram í Long drinks glasi. Setjið í mulinn klaka, hellið í Southern Comfort, líkjör og fyllið upp með Sprite. Hrærið. Skreytið með lime-sneið.
1 cl sykursíróp (2 hlutar hrásykur á móti 1 hlut vatni) 2 cl limesafi 4 cl kampavín 4 cl Havana Club 7 años 6 jarðaber Setjið allt nema kampavín í blandara. Bætið við klaka. Hrærið í hálfa mínútu. Hellið í Daiquiri-glas og bætið við kampavíninu.
Þessi Kúbu-kokkteill er ekki alveg hreinræktaður kúbanskur þar sem trönuber er ekki að finna á Kúbu. Hann er góður engu að síður. 1 msk sykur 15 ml lime-safi 120 ml trönuberjasafi 6 cl Havana Club 7 años Pressið lime-safann og hellið í long drink-glas. Leysið upp sykurinn í safanum. Setjið klaka í glasið. Hellið í