Vífilfell styrkir Klúbb matreiðslumeistara
Klúbbur Matreiðslumeistara og Vífilfell hafa gert með sér samning til fjögurra ára sem tryggir Klúbbi Matreiðslumeistara umfangsmikinn stuðning á hverju ári.
Klúbbur Matreiðslumeistara og Vífilfell hafa gert með sér samning til fjögurra ára sem tryggir Klúbbi Matreiðslumeistara umfangsmikinn stuðning á hverju ári.
Þegar maður lítur yfir þau hundruð vína sem smökkuð voru á síðasta ári er ýmislegt sem stendur upp úr. Það halda sem betur fer áfram að koma inn virkilega góð ný vín auk þess sem mörg vín sem lengi hafa verið á markaðnum standa ávallt fyrir sínu.
Krydd eru ómissandi við matargerð og nú hafa bæst á markaðinn nýtt íslenskt salt og kryddblröndur. Það er fyrirtækið Kryddveislan, sem sett hefur á markað nokkrar kryddblöndur og að auki íslenskt salt, sem unnið er undan sjávarbotni Reykjaness.
Vínlykillinn eða Clef du Vin er lítið tæki frá Peugeot sem dýft er ofan í vínglas. Tækið, sem er í laginu eins og lítill vasaostahnífur, ef eitthvað slíkt er til, er með koparplötu á „hnífsblaðinu sem breytir eðli vínsins þegar hún kemst í snertingu við það.
Vínótekið verður í jólaskapi í allan desember og við munum vikulega draga út vinningshafa af póstlistanum okkar. Það er margt spennandi í pottinum. Meðal annars munum við í hverri viku draga út flösku af Veuve Clicquot kampavíni og Faustino rauðvíni og freyðivíni.
Það er þó nokkuð um að verð á góðum vínum lækki í vínbúðunum nú í desember. Má nefna sem dæmi að Rioja-vínið Montecillo Crianza lækkar um 200 krónur eða úr 1.899 krónur í 1.699 krónur.
Það eru alltaf margir sem bíða spenntir eftir því að sjá hvaða vín verða fyrir valinu sem vín ársins hjá bandaríska tímaritinu Wine Spectator. Að þessu sinni var það vínið Saxum frá Paso Robles í Kaliforníu sem trónir í efsta sæti.
Jóla Bock er nýjasta afurðin í “Íslenskur úrvals” fjölskylduna frá Vífilfelli. JólaBock er bruggaður í stíl hefðbundinna Bock bjóra eða „Traditional Bock“. Grunnmaltið er Munichmalt sem gefur ríkulegt maltbragð og svolítinn karmellu- og súkkuaðikeim.
Öll framleiðsla af Aalborg Jólaákavíti ársins hefur verið innkölluð samkvæmt tilkynningu sem Pernod Ricard, eigandi Aalborg, hefur sent frá sér. Sala var ekki hafin á Íslandi. Einungis verður því hægt að kaupa eldri árganga af ákavítinu.
Eyrún Huld Gísladóttir barþjónn á Silfri bar sigur úr býtu á Finlandia Cup-keppninni sem haldin var á Nasa fyrir helgi. Alls tóku 43 barþjónar þátt í keppninni, sem haldin var í samvinnu við Barþjónaklúbb Íslands, og er þetta því ein umfangsmesta keppni af sínu tagi sem haldin hefur verið á Íslandi.