Leitarorð: Fréttir

Fréttir

Nítjánda hæðin í Turninum í Kópavogi hefur haldið inn á nýjar brautir og hafa forsvarsmenn þess, sem eru reynsluboltar úr íslensku veitingalífi, ákveðið að beina sjónum sínum að þeim stóra hópi fólks sem gjarnan vill fara út að borða með allri fjölskyldunni.

Fréttir

Verð á tugum vína lækkaði í vínbúðunum nú um síðustu mánaðamót. Má meðal annars nefna að þriggja lítra kassi af Drostdy Hof Cape Red lækkaði úr 5.399 krónur í 5.299 krónur, Peter Lehmann Shiraz og Peter Lehmann Cabernet Sauvignon lækkuðu úr 2.599 í 2.498 krónur.

Fréttir

Nicolas Pollman frá Bodegas Emiliana í Chile var staddur hér á landi á dögunum til að kynna vínhúsið og stjórna smökkun á vínum frá Emiliana og Adobe. Þetta vínhús er í eigu vínrisans Concha y Toro en er engu að síður algjörlega sjálfstæð eining hvað varðar rekstur og markaðssetningu.  Fyrirtækið er nú einn stærsti framleiðandi lífrræna vína í heiminum.

Fréttir

Bandaríska víntímaritið Wine & Spirits birtir í hefti næsta mánaðar lista yfir bestu vínhús ársins 2010. Á listanum er þau 100 vínhús sem hafa staðið sig best í smökkunum tímaritsins undanfarið

Fréttir

Það hækkar ekki allt. Nokkrar víntegundir hafa verið að lækka verulega á síðustu dögum vegna gengisbreytinga og hagstæðari samninga við erlenda framleiðendur sem hafa lækkað verð til að koma móts við lágt gengi íslensku krónunnar.

Fréttir

Fyrr í sumar fékk Víking Ölgerð á Akureyri fyrst íslenskra ölgerða lífræna vottun frá vottunarstöðinni Tún.  Vottunin hefur mikið gildi fyrir Víking Ölgerð sem nú hefur framleitt fyrsta íslenska bjórinn þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu lífrænt ræktuðu hráefni auk þess sem framleiðsluferlið hefur verið vottað af fagaðilum.

Fréttir

Borg Brugghús hefur í samstarfi við veitingahúsið Austur, framleitt nýja bjórtegund sem hlotið hefur nafnið Austur brúnöl. Ölið er flokkað sem hefur stuttan framleiðslutíma og ferskt bragð. Var mildöl mjög vinsælt á Bretlandi eftir fyrri heimsstyrjöldina.

Fréttir

Franskir vísindamenn við háskólann í Reims hafa komist að þeirri niðurstöðu að best sé að beita sömu aðferð þegar menn hella kampavíni í glös og þegar bjórglös eru fyllt. Með því að halla glasinu sé tryggt að kolsýran haldist sem lengst í víninu.

Fréttir

Þrátt fyrir að löngum hafi verið litið svo á að vodka sé þjóðardrykkur Pólverja sýnir ný rannsókn að flestir Pólverjar kjósa fremur aðra drykki. Mikla athygli vekur að léttvín nýtur nú meiri hylli í Póllandi en vodka.

1 5 6 7 8 9 16