Vínhús ársins hjá Wine & Spirit Magazine
Bandaríska víntímaritið Wine & Spirits birtir í hefti næsta mánaðar lista yfir bestu vínhús ársins 2010. Á listanum er þau 100 vínhús sem hafa staðið sig best í smökkunum tímaritsins undanfarið
Bandaríska víntímaritið Wine & Spirits birtir í hefti næsta mánaðar lista yfir bestu vínhús ársins 2010. Á listanum er þau 100 vínhús sem hafa staðið sig best í smökkunum tímaritsins undanfarið
Charon-sósan er klassísk frönsk sósa, náskyld Béarnaise og er yfirleitt notuð með fiski. Hún er til dæmis tilvalin með sólkola eða rauðsprettu.
Það hækkar ekki allt. Nokkrar víntegundir hafa verið að lækka verulega á síðustu dögum vegna gengisbreytinga og hagstæðari samninga við erlenda framleiðendur sem hafa lækkað verð til að koma móts við lágt gengi íslensku krónunnar.
Fyrr í sumar fékk Víking Ölgerð á Akureyri fyrst íslenskra ölgerða lífræna vottun frá vottunarstöðinni Tún. Vottunin hefur mikið gildi fyrir Víking Ölgerð sem nú hefur framleitt fyrsta íslenska bjórinn þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu lífrænt ræktuðu hráefni auk þess sem framleiðsluferlið hefur verið vottað af fagaðilum.
Borg Brugghús hefur í samstarfi við veitingahúsið Austur, framleitt nýja bjórtegund sem hlotið hefur nafnið Austur brúnöl. Ölið er flokkað sem hefur stuttan framleiðslutíma og ferskt bragð. Var mildöl mjög vinsælt á Bretlandi eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Franskir vísindamenn við háskólann í Reims hafa komist að þeirri niðurstöðu að best sé að beita sömu aðferð þegar menn hella kampavíni í glös og þegar bjórglös eru fyllt. Með því að halla glasinu sé tryggt að kolsýran haldist sem lengst í víninu.
Þrátt fyrir að löngum hafi verið litið svo á að vodka sé þjóðardrykkur Pólverja sýnir ný rannsókn að flestir Pólverjar kjósa fremur aðra drykki. Mikla athygli vekur að léttvín nýtur nú meiri hylli í Póllandi en vodka.
Douglas Murray, einn af stofnendum Montes í Chile, er látinn en hann hafði barist við krabbamein um langt skeið.
Vinsældir veitingahússins Noma í Kaupmannahöfn eru farnar að taka sinn toll á matreiðslumeistaranum Rene Redzepi. Noma var nýlega valið besta veitingahús í heimi af Restaurant Magazine og löng biðröð er eftir borðum.
Töluverð ólga er meðal vínbænda sem framleiða vín sín með lífrænum hætti eftir að ESB hafnaði því í vikunni að samþykkja staðla um lífræna víngerð og koma á laggirnar sérstökum flokki lífrænna vína.