Humarveisla á Grand
Ferskur, lifandi humar frá Nýfundnalandi í Kanada verður matreiddur beint á diskinn dagana 11. -13. júní á Grand Hótel Reykjavík enn humarinn frá Nova Scotia er oft nefndur Konungur sjávarfangsins.
Ferskur, lifandi humar frá Nýfundnalandi í Kanada verður matreiddur beint á diskinn dagana 11. -13. júní á Grand Hótel Reykjavík enn humarinn frá Nova Scotia er oft nefndur Konungur sjávarfangsins.
Þráinn Freyr Vigfússon lenti í áttunda sæti í forkeppni Bocuse d’Or sem haldinn var í dag og kemst því áfram í heimsúrslitakeppnina, sem haldinn verður í Lyon í byrjun næsta árs.
Vínhúsið Cantenac-Brown var í sviðsljósinu í vikunni en um áratugar hefð er komin fyrir því að eitthvert af stórstirnum Bordeaux heimsækji Ísland fyrri hluta júní-mánaðar. Að þessu sinni var það José Sanfins, forstjóri Chateau Cantenac-Brown í Margaux.
Ramón Roqueta frá stýrði smökkun á vínum Roqueta-fjölskyldunnar sem haldin var á veitingahúsinu Einari Ben fyrr í vikunni. Roqueta á meðal annars vínhúsin Bodegas Roqueta og Abadal á svæðinu Pla del Bage norður af Barcelona.
Tvær mínútur, kallar Hákon Már Örvarsson sem fylgist grannt með því sem fram fer í eldhúsinu hjá Fastus í Síðumúla þar sem Þráinn Freyr Vigfússon hefur undanfarna mánuði æft stíft fyrir undankeppni matreiðslukeppninnar Bocuse d’Or sem fram fer í Sviss í 7. og 8. júní næstkomandi.
Það var þéttskipað í Gyllta Salnum á Hótel Borg um helgina þegar þar var haldið svokallað „bombusmakk“ á vegum Vífilfells. Þar voru samankomnir vel á annan tug erlendra gesta sem kynntu vín fyrirtækja sinna.
Það verður sannkölluð frönsk hallarveisla í Viðey fimmtudaginn 3. júní og á Hótel Holti um Sú skemmtilega hefð hefur myndast á undanförnum árum að í byrjun júní komi hingað til lands forsvarsmaður einhvers af bestu vínhúsum Bordeaux, haldi fyrirlestur á Hótel Holtin og smökkun auk þess sem gestum gefist kostur á að snæða dýrindis máltíð með vínum viðkomandi vínhúss.
Það hefur ekki verið neinn skortur á stórkostlegum árgöngum frá Bordeaux á síðastliðnum árum. Öldin hófst með hinum stórkostlega 2000-árgangi og nokkrum árum síðar voru menn sammála um að 2005 væri líklega einn besti árgangur allra tíma. Nú eru vísbendingar um að vín ársins 2009 slái þeim öllum út.
Nýr og glæsilegur séréttaseðill eða á la carte-seðill var tekinn í notkun í Perlunni á dögunum. Hægt er að velja um annars vegar fjögurra rétta seðil á 7.290 krónur (12.380 krónur með fjórum glösum af víni) eða þá raða saman réttum að eigin vild.
Einn helsti stjörnukokkur Bretlands á síðustu öld, Pierre Koffmann, hefur ákveðið að hefja störf á ný og opnar nýr veitingastaður hans á fimm stjörnu lúxushótelinu The Berkeley í Knigtshbridge í London í næsta mánuði.