Trivento Mixtus í nýjum búningi
Eitt vinsælasta vín landsins, Mixtus frá argentínska vínhúsinu Trivento, hefur fengið andlitslyftingu. Vínið er nú komið í flöskur með skrúfutappa og nýju útliti og vínið sjálft kemur úr nýrri víngerð.
Eitt vinsælasta vín landsins, Mixtus frá argentínska vínhúsinu Trivento, hefur fengið andlitslyftingu. Vínið er nú komið í flöskur með skrúfutappa og nýju útliti og vínið sjálft kemur úr nýrri víngerð.
Þótt Íslendingar séu orðnir vanir því að um land okkar sé fjallað, á bæði jákvæðan og neikvæðan hátt, er það ekki á hverjum degi sem bandaríska stórblaðið New York Times fjallar um íslenskan veitingastað og hrósar honum í hástert.
Mekka og Íslensk-Ameríska stóðu á dögunum fyrir stórri vörusýningu á Grand Hotel þar sem margt af því besta sem fyrirtækin bjóða upp á í mat og drykk var kynnt.
Feðgarnir Carlos og Tumi Ferrer voru sigursælir þegar kept var í gerð kaffidrykkja í Hugmyndahúsi háskólanna um síðustu helgi.
Árlegt Íslandsmeistaramót barþjóna var haldið á Brodway á sunnudagskvöld og var mótið hið glæsilegasta að venju.
Hótel Edda hefur gengið til samstarfs við hjónin Friðrik Val Karlsson og Arnrúnu Magnúsdóttur, sem áður ráku veitingastaðinn Friðrik V á Akureyri. Friðrik og Arnrún munu í sumar vinna náið með Edduhótelunum 13 sem starfrækt eru á landsbyggðinni að frekari þróun veitingastaða hótelanna.
Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að eitthvað lækki í vínbúðunum en samkvæmt tilkynningu hefur verð á Carlo Rossi vínum verið lækkað töluvert í ÁTVR.
Japanska matargerðin verður í miðpunkti á veitingastaðnum 101 frá og með fimmtudegi til og með sunnudegi þegar japanski matreiðslumeistarinn Akiro Okada tekur völdin í eldhúsinu.
Fyrsta vefkönnun Vínóteksins er komin í loftið. Við ákváðum að hún skyldi ekki snúast um vín heldur hamborgara. Hamborgarinn er nefnilega um margt miskilinn. Margir líta niður á hann og telja hann vera helstu táknmynd skyndibitaómenningar og eiga lítið sameiginlegt með sælkerafæði.
Það eru sorgarfréttir að veitingastaðurinn Friðrik V á Akureyri skuli hætta rekstri. Friðrik Valur Karlsson er snillingur í eldhúsinu og hann og kona hans Arnrún Magnúsdóttir hafa rekið staðinn af einstrakri ástríðu um árabil.