Tandoori-kjúklingur prófessorsins
Þennan rétt fengum við fyrst í matarboði á prófessorsheimili í vesturbænum fyrir um áratug og hefur hann reglulega ratað á diskana síðan.
Þennan rétt fengum við fyrst í matarboði á prófessorsheimili í vesturbænum fyrir um áratug og hefur hann reglulega ratað á diskana síðan.
Satay eða Sate grillpinnar eru gífurlega vinsælir í Suðaustur-Asíur, ekki síst í Indónesíu, Singapore og Malasíu. Ég kynntist Satay fyrst í heimsókn til Singapore fyrir einum og hálfum áratug. Þar er hvað besta matinn að fá á svokölluðum „hawkers markets“ sem eru eins konar útimarkaðir þar sem hægt er að labba á milli bása og kaupa sér mismunandi rétti.
Þessi sikileyska uppskrift er fersk og svolítið framandi. Það þarf að marínera kjúklinginn, helst yfir nótt, og því nauðsynlegt að skipuleggja þessa máltíð fram í tímann.
Þetta er léttur og mildur grillréttur þar sem salvía gefur tóninn í bragðinu.
Þessi kjúklingur er undir japönskum áhrifum þótt ekki sé hann hreinræktaður japanskur, líklega nær því að vera amerísk-japanskur. Slær yfirleitt í gegn hjá öllum kynslóðum
Þetta er er frábær grillréttur upphaflega ættaður frá Bandaríkjunum. Meðlætið skiptir lykil máli því saman myndar rétturinn stórkostlega heild.
Þessa uppskrift fann ég á sínum tíma í sænskri matreiðslubók frá áttunda áratugnum og var rétturinn þar kenndur við „Alibab“ sem sagður var hafa verið þekktur matgæðingur í París á þriðja áratugnum. Hann naut víst einnig mikilla vinsælda á matseðli Kong Hans Kælder í Kaupmannahöfn á áttunda áratug síðustu aldar.
Þessi ítalski kjúklingaréttur er fljótlegur, einfaldur en gífurlega góður. Tómatarnir og vínið mynda frábæra sósu þegar þau eldast saman við kryddjurtirnar og laukinn sem smellur við pasta og parmesan-ost.