Santa Digna Cabernet Sauvignon Reserve 2005
Spánverjinn Miguel Torres hóf á sínum tíma umbyltingu vínframleiðslunnar í Chile er hann setti á laggirnar fyrstu nútímalegu víngerðina í landinu. Enn í dag er vínhús hans, Santa Digna, í fremstu röð.
Spánverjinn Miguel Torres hóf á sínum tíma umbyltingu vínframleiðslunnar í Chile er hann setti á laggirnar fyrstu nútímalegu víngerðina í landinu. Enn í dag er vínhús hans, Santa Digna, í fremstu röð.
Það er ekki oft sem vín frá Pla de Bages-héraðinu í Katalóníu reka á fjörur okkar. Þetta litla svæði er rétt við borgina Barcelona og einungis um handfylli framleiðanda rækta þar vín
Bio Bio er syðsta víngerðarsvæði Chile og aðstæður þar eru mjög frábrugðnar því sem er að finna um 500 km í norðar í Maípo, Colchagua og Curicó. Andes-fjöllin eru ekki mikill áhrifavaldur á loftslagið, sem er bæði svalara og rakara en í norðlægari víngerðarsvæðum.
Bandaríski vínrisinn Gallo er ekki bara stærsta fjölskyldufyrirtæki vínheimsins heldur eitt stærsta vínfyrirtæki veraldar.
Það er óhætt að segja að Ný-Sjálendingar hafi náð miklum árangri í víngerð. Ekki síst hefur þeim tekist vel upp með tvær franskar þrúgur, hina hvítu Sauvignon Blanc og hina rauðu Pinot Noir. Báðar eiga þær „heima“ í Mið-Frakklandi og af einhverjum ástæðum dafna þær ótrúlega vel á við nýsjálenskar aðstæður.
Spánverjinn Miguel Torres var meðal þeirra fyrstu sem veðjuðu á chilensk víngerð. Hann hafði með fjárfestingum sínum í lok áttunda áratugar síðustu aldar mikil áhrif á nútímavæðingu vínanna frá Chile og enn í dag er vínhúsið hans sem heitir Santa Digna með þeim fremstu í landinu.
Þetta hvítvín kemur frá svæðinu Curico í Chile sem teygir sig þvert yfir landið frá Kyrrahafinu austur að Andesfjöllum. Loftslagið er Miðjarðarhafslegt og því ekki skrýtið að þetta sé með helstu vínræktarsvæðum Chile.
Það er dýrt að kaupa kampavín þessa stundina og leit að góðum freyðivínum. Hér er svolítið spennandi vín á ferðinni. Það eru ekki mörg freyðivín framleidd í Rioja en þau eru til.
Þetta rauðvín kemur frá Bordeaux í suðvestur-Frakklandi blanda úr þrúgunum Merlot og Cabernet Sauvignon og er Merlot sú sem er ríkjandi.
Vínin frá Montes í Chile hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi enda er hér á ferðinni eitt vandaðasta vínhús landsins. Skemmst er að minnast að Carmenere-vínið Purple Angel frá Montes var valið vín ársins 2009 hér á síðunni.