Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Þetta suður-spænska rauðvín kemur frá svæðinu Jumilla og einum helsta framleiðanda þess svæðis, Bodegas Luzon. Helsta þrúga Jumilla heitir Monastrell en einhverjir kunna að þekkja hana undir hinu franska nafni hennar sem er Mourvédre.

Víndómar

Hér er þriðja vínið frá suður-spænska framleiðandanum Luzon, sem nýlega kom´á markaðinn, en þegar hefur verið fjallað um Luzom Jumilla og Piquito. Í þessu víni fær Monastrell-þrúgan, sem margir þekkja undir franska nafninu Mourvedre, að njóta sín til fulls og líkt og hin vínin tvö er þetta hörkuvín í ljósi verðs.

Víndómar

Frakkland er stórt og víðfeðmt land og aðstæður til víngerðar eru afskaplega fjölbreyttar eins og sést á þeirri breiðu flóru vína sem Frakkar geta boðið upp á.

Víndómar

Þessi suður-ástralski Shiraz frá Suður-Ástralíu er í essinu sínu núna. Ég smakkaði hann í fyrra og fannst þá 2008 árgangurinn full ungur og hrár. Núna blómstrar hann hins vegar.

Víndómar

Cono Sur hefur markað sér sess sem eitt af framsæknari vínhúsum Chile. Það varð fyrsta vínhúsið í Chile til að tappa vínum á flöskur með skrúfutappa og hefur verið leiðandi í Chile í framleiðslu á vínum úr þrúgunni Pinot Noir.

Víndómar

Þetta hvítvín frá austurríska framleiðandanum Reiner Weiss er kennt við Wachau sem er eitt þekktasta víngerðarsvæði Austurríkis og liggur upp af Dóná. Þrúgan er Gruner Veltliner, sem er eitt helsta flaggskip austurrískrar víngerðar, enda einstaklega góð.

Víndómar

Rósavín eru oft misskilin enda margir ólíkir stílar til. Klassísk rósavín líkt og eru svo vinsæl við Miðjarðarhafið eru einfaldlega vín úr rauðum þrúgum, framleidd líkt og um hvítvín væri að ræða.

Víndómar

Þetta Riesling-vín frá Þýskalandi kemur svolítið skemmtilega á óvart. Það hefur alls ekki mjög áberandi einkenni af þýskum Riesling en er engu að síðu hið aðgengilegasta og þægilegasta vín miðað við verð.

Víndómar

Compania Vinicola del Norte del Espana er eitt af elstu og stærstu vínhúsum Rioja. Vínin frá CVNE eða Cune eins og fyrirtækið er yfirleitt kallað í dag eru tiltölulega nýkomin á íslenska markaðinn og var nýlega haldin stór og mikil smökkun á þeim sem lesa má um hér.

1 37 38 39 40 41 57