Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Þrúgan Gruner Veltliner er einstök fyrir Austurríki og heillar flesta þá sem henni kynnast. Þegar vel tekst til eru þetta vín sem eru fersk og ljúffeng og geta att kappi við flest önnur hvítvín heims.

Víndómar

Francois d’Allaines er lítill framleiðandi sem stofnaði vínhús sitt árið 1996 í þorpinu Demigny í Búrgund. Hann framleiðir aðallega vín af svæðunum Cote de Beaune og Cote Chalonnaise og hafa vín hans verið fáanleg hér í einhverjum mæli síðustu árin.

Víndómar

Suður-Afrísku vínin frá Two Oceans hafa vakið verðskuldaða athygli á síðustu árum fyrir að vera með þeim langbestu í sínum verðflokki.

Víndómar

Freixenet er líklega þekktasti freyðivínsframleiðandi Spánar. Öll freyðivínin eru framleidd með kampavínsaðferðinni það er að kolsýrugerjunin á sér stað í hverri flösku fyrir sig en ekki í stórum tönkum eins og oft er raunin með ódýrari freyðivín.

Víndómar

Puglia er þekktari fyrir rauðvín sín en hvítvín en rétt eins og önnur hvítvín Suður-Ítalíu eru þau frá Puglia yfirleitt ljúf og ekki síst ódýr. Það á ágætlega við um þetta hvítvín úr þrúgunni Malvasia Bianca.

Víndómar

Þetta er ljúft og milt lífrænt ræktað hvítvín frá vínhúsinu Montalto á suðvesturströnd Sikileyjar þar sem sikileyska þrúgan Cataratto fær að njóta sín vel.

Víndómar

Þetta er eitt af toppvínunum frá Trivento í Mendoza í Argentínu. Vínviðurinn á ekrunum sem Golden Reserve kemur af er rúmlega 100 ára gamall og handtíndar þrúgurnar því mun kröftugri en þrúgur af yngri vínvið.

Víndómar

Freyðivínin frá Bourgogne eru kölluð Crémant de Bourgogne og líklega kemst ekkert annað svæði nær því að gera freyðivín sem líkjast kampavínum. Þetta er nágrannasveit Champagne og þrúgurnar því ekki bara þær sömu og ræktaðar í Champagne (Pinot Noir og Chardonnay) heldur aðstæðurnar einnig mjög svipaðar

Víndómar

Þó að þetta sé ekki „stórt“ rauðvín kemur það skemmtilega á óvart. Svona í þessum stíl sem að maður fær gjarnan sem borðvín á bistro-veitingastöðum í Frakklandi. Þykkt og fullt af ávöxtum og ekkert voðalega dýrt.

1 34 35 36 37 38 57