Lime og kóríander Fajitas
Þetta er kröftug og krydduð útgáfa af Fajitas. Best er að nota þunnar sneiðar af nautakjöti, t.d. sirloin og mikilvægt að marinera í að minnsta kosti hálfan sólarhring.
Þetta er kröftug og krydduð útgáfa af Fajitas. Best er að nota þunnar sneiðar af nautakjöti, t.d. sirloin og mikilvægt að marinera í að minnsta kosti hálfan sólarhring.
Tómatar eru eitt mikilvægasta hráefni matargarðar Miðjarðarhafsins og stundum þarf lítið annað en góða, þroskaða tómata líkt og í þessari suður-ítölsku uppskrift.
Þessi kryddlögur hentar einstaklega vel með lambalæri og það er hægt að nota jafnt lambalæri sem sneiðar af innralæri. Sérríið skiptir miklu máli enda ræður það ferðinni í bragðinu.
Lengi vel var einungis hægt að fá keyptar frosnar maísstangir hér á landi. Það er sem betur fer liðin tíð og nú er hægt að fá ferskan maís í blöðum, sem er hreinasta sælgæti þegar búið er að grilla hann.
Þessi uppskrift er frönsk að uppruna og tilbrigði við þekkt stef franska eldhússins, þar sem Dijon-sinnep og sýrður rjómi vinna saman. Í þessu tilviki með fersku estragoni. Útkoman er virkilega góður og bragðmikill réttur.
Þetta er einföld aðferð til að gefa lambafilé aukið bragð. Það þarf ekki að marinera kjötið svo klukkutímunum skiptir heldur byrjum við bara beint að grilla.
T-Bone er eitthvert besta grillkjöt sem hægt er að hugsa sér og gráðaostur gefur bragð sem smellur ótrúlega vel að grilluðu kjöti.
Einfaldleikinn er oft bestur, ekki síst þegar um ítalskar uppskriftir er að ræða. Í upprunalegu uppskriftinni er gert ráð fyrir pancetta, sem er svínasíða, ekki ósvipuð beikoni. Best er að nota eins þykkt beikon og þið finnið.
Lærið er einhver besti bitinn af lambinu eins og Íslendingar þekkja vel. Til að grilla það er best að láta kjötborðið úrbeina það og skera í „butterfly“. Með því að láta það liggja í þessum kryddjurta- og rauðvínslegi fáið þið magnaða máltíð.
Þessi kjúklingur byggist á því að troða kjúklinginn út af kryddjurtum og sítrónum og grilla hann svo lengi á óbeinum hita.