Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Rósavín frá Bourgogne eru ekki algeng en þau eru til og eru oft mjög athyglisverð, þó ekki væri nema fyrir það það hversu sjaldséð er að sjá Pinot Noir frá Bourgogne í þessum búningi.

Víndómar

Það verður rósavínsþema næstu daga enda er þetta besti árstíminn fyrir rósavín, þau eru öðru fremur sumarvín til að njóta á sólríkum dögum. Og hvar á maður að byrja annars staðar en á frægasta rósavíni allra tíma.

Víndómar

Spænski vínjöfurinn Miguel Torres byrjaði á sínum heimaslóðum í Pénedes í Katalóníu en færir sífellt út kvíarnar og hefur nýlega hafið framleiðslu á vínum í Rioja.

Víndómar

Þrúgan Pinot Noir skiptist í nokkra stofna og einn af elstu klónum hennar er nefndur Pinot Fin. Pinot-vín af þeim stofni þykja alla jafna betri og höfugri en af klónunum Pinot Tordu, sem gefa ekki af sér jafngóðan ávöxt.

Víndómar

Vínsvæðið Bardolino er kennt við samnefndan bæ við Gardavatnið. Besta svæðið er kennt við Classico teygir sig upp í hlíðarnar austur af vatninu í kringum bæinar Bardolino, Affi, Garda, Costermano og Lazise. Einfaldari Bardolino-vín eru svo ræktuð á sléttunum suður af þessum þorpum.

Víndómar

Það hefur verið vinsælt að gera lítið úr Merlot-þrúgunni, ekki síst eftir myndina Sideways fyrir nokkrum árum. Hins vegar gleyma menn oft hversu góð hún er t.d. í St. Emilion og Pomerol. Það er líka sérstakt að hún virðist kunna mjög vel við sig á Sikiley.

Víndómar

Flestir þekkja líklega Faustino fyrir rauðu Rioja-vínin sem fyrirtækið framleiðir. Það framleiðir hins vegar einnig ágætis hvítvín og freyðivín.

Víndómar

Þrúgan Pinot Grigio hefur á síðustu árum komist í tísku í heiminum í kjölfar mikilla vinsælda norður-ítalskra Pinot Grigio-vína, ekki síst í Bandaríkjunum. Þetta er einn af sumarsmellunum.

Víndómar

Pieropan-fjölskyldan í bænum Soave í Veneto á Ítalíu hefur fyrir löngu haslað sér völl sem einhver besti framleiðandi hvítvína á Ítalíu en nánar má lesa um þetta merka vínhús með því að smella hér.

1 33 34 35 36 37 57