Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Það er ekki langt síðan að franskar reglur meinuðu víngerðarmönnum í Búrgund að taka fram á flöskumiðanum að hvítvínin þeirra væru gerð úr Chardonnay-þrúgunni. Nú hefur verið slakað á þeim reglum og Pascal Lachaux er ekkert að fela þessa vinsælu þrúgu.

Víndómar

Þetta argentínska vín úr þrúgunum Malbec, Merlot og Cabernet sýnir vel hversu mikil og öflug hún getur verið en Malbec, þótt hún sé frönsk að uppruna, er orðin að helsta tákni argentínskra rauðvína og fær hér að njóta sín með ættingjum sínum frá Bordeaux.

Víndómar

Orvieto eru hvítvín frá Úmbríu á miðhluta Ítalíu en þetta Orvieto Classico er úr smiðju vínhússins Piccini, sem hefur aðsetur í Toskana en framleiðir vín víða á Ítalíu.

Víndómar

Sumarið 2007 var alls ekkert sérstakt í Chablis frekar en annars staðar í Bourgogne. Það sem bjargaði hins vegar vínunum vorgu góðar aðstæður um vorið í apríl og um haustið í september. Þegar upp var staðið reyndist því 2007 afbragðsár fyrir hvít Búrgundarvín á borð við Chablis.

Víndómar

Soave norður af borginni Verona á Norður-Ítalíu er eitt helsta hvítvínshérað landsins og vínin eru yfirleitt að uppistöðu úr þrúgunum Garganega og Trebbiano.

Víndómar

Vínlínan sem ber nafnuð Caracter kemur af ekrum Bodegas Santa Ana í Mendoza í Argentínu. Santa Ana er með eldri búgörðum Argentínu, hóf framleiðslu árið 1891, og hefur um langt skeið lagt rækt við útflutning vína.

Víndómar

Pouilly-Fuissé hefur löngum verið það Búrgundarvín sem Íslendingar hafa þekkt hvað best. Þetta er Chardonnay-vín líkt og önnur hvítvín frá Búrgund og kemur frá þorpinu Pouilly í suðurhluta héraðsins.

Víndómar

Þetta er ódýrt vín úr Montepulciano-þrúgunni frá Abruzzo á Ítalíu sem kemur skemmtilega á óvart. Kröftugt og karlmannlegt, ekki fínslípað og áferðarfagurt, svona dæmigert ítalskt bændavín.

1 31 32 33 34 35 57