Olivier Leflaive Bourgogne Cuvée Margot 2007
Þótt Cuvée Margot sé skilgreint sem AOC Bourgogne þá koma þrúgurnar í vínið allar af mismunandi ekrum af svæðinu Cote de Beaune.
Þótt Cuvée Margot sé skilgreint sem AOC Bourgogne þá koma þrúgurnar í vínið allar af mismunandi ekrum af svæðinu Cote de Beaune.
Þessi Sauvignon Blanc er frá Weststeiermark en það eru nokkrar ungar víngerðarfjölskyldur sem tekið hafa sig saman og flytja út vín undir nafninu Masters of Schilcher.
Ef einhvern tímann er rétti tíminn fyrir sæt og bleik freyðivín þá er það núna yfir hásumarið. Þetta norður-ítalska vín freyðir með mildum bólum og áfengismagnið er einungis 6,5%.
William Févre hefur verið þekkt nafn í Chablis allt frá því að hann sá um sína fyrstu uppskeru árið 1959. Hann var þó langt í frá óumdeildur, hann fór ótroðnar slóðir og notaði eik í ríkari mæli en flest önnur vínhús í Chablis. Hefðbundin Chablis-vín eru yfirleitt óeikuð.
Þótt þrúgurnar Cabernet Sauvignon og Merlot séu ættaðar frá Bordeaux þá er fátt hér sem minnir á það franska hérað. Hinn norður-ítalski uppruni leynir sér ekki og vínið á meira sameiginlegt með hinum mildu og ávaxtaríku Valpolicella-vínum þótt þrúgurnar séu ekki þær sömu.
Viognier-þrúgan er farin að skjóta upp kollinum víða þótt lengi vel hafi hún verið bundin við heimaslóðir sínar í Suður-Frakklandi. Hér er hún í argentínskri útgáfu frá Trivento.
Santana er vín úr Tempranillo-þrúgunni framleitt af vínhúsinu Bodegas Victorianas í La Mancha á Mið-Spáni en það er í eigu Rioja-hússins Faustino.
Masters of Schilcher er heitið sem fjórar víngerðarfjölskyldur í Steiermark í Austurríki hafa valið að nota við markaðssetningu vína sinna til útflutnings.
Þetta rósavín er frá Chile, nánar tiltekið Santa Digna, vínhúsi Spánverjans Miguel Torres þar í landi. Þetta er hreint Cabernet Sauvignon en þegar maður þefar af víninu þarf maður eiginlega að lesa á flöskumiðann aftur til að sannfæra sig um að Torres hafi ekki líka notað rifsber.
Við höldum áfram með rósavínin og hoppum yfir til Spánar. Þetta rósavín er frá Navarra á Norður-Spáni og þrúgurnar eru Tempranillo og Merlot.