Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Paolo di Marchi, sem heimsótti Ísland haustið 2007 og leiddi m.a. eftirminnilega smökkun  í Þingholti á ellefu Cepparello-árgöngum hefur sem betur fer haldið áfram að bæta við nýjum árgöngum síðan.

Víndómar

Vínekran Sackträger liggur niður að Rín við þorpið Oppenheim en nafnið á sér langa sögu og má rekja til þess er sekkir voru bornir upp brekkuna úr prömmunum sem áðu við þorpsbryggjuna. Guntrum-fjölskyldan sem hefur ræktað vín við Rín í margar aldir hefur aðsetur í næsta þorpi – Nierstein – en margar af bestu ekrum fjölskyldunnar eru hins vegar í Oppenheim.

Víndómar

Englar hafa um árabil verið áberandi á flöskumiðum vínhússins Montes í Chile og í vínkjallaranum í Colchagua er að finna stórt útskorið englalalíkneski. Það lá því kannski beint við að eitt af bestu vínum fyrirtækisins væri kennt við engla.

Víndómar

Fransola er líkt og flest önnur spænsk hvítvín Miguel Torres frá Pénedes-svæðinu í Katalóníu og eru Sauvignon Blanc-þrúgur notaðar við framleiðslu þess.

Víndómar

Chablis er nyrsta víngerðarsvæði Bourgogne og líklegasta eitt þekktasta nafnið í heimi þegar hvítvín eru annars vegar. Líkt og önnur hvít Búrgundarvín eru Chablis-vínin hrein Chardonnay-vín og yfirleitt – ólíkt hvítvínum sunnar í Búrgund – óeikuð.

Víndómar

Þetta rauðvín frá Tommasi kemur ekki frá heimaslóðum þeirra í Veneto heldur frá Maremma á vesturströnd Toskana, blanda af Sangiovese (60%) og Cabernet Sauvignon (40%). Það er ekki langt síðan að menn fóru að uppgötva hversu frábærar aðstæður til vínræktar eru í Maremma en þaðan koma nú nokkur af þekktustu ofurvínum Ítalíu, s.s. Ornellaia og Sassica

Víndómar

Hér er á ferðinni hrikalega flottur Cote du Rhone Villages frá einum af betri framleiðendum héraðsins, Perrin-fjölskyldunni, sem þekktust er fyrir að eiga ofurvínhúsið Chateau de Beaucastel í Chateauneuf-du-Pape.

Víndómar

Þetta ferska hvítvín frá framleiðandanum Tommasi er frá Veneto á Norður-Ítalíu, blanda úr þrúgunum Garganega (84%) og Chardonnay (16%).

Víndómar

Isole e Olena er eitt besta og athyglisverðasta vínhús Chianti í Toskana á Ítalíu. Eigandinn Paolo de Marchi eltir ekki tískusveiflur heldur leggur áherslu á að bæta vín sín jafnt og þétt og viðhalda hinum eðlilega stíl héraðsins.

1 41 42 43 44 45 57