Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Þetta er lífrænt ræktað rauðvín frá Miðjarðarhafssvæði Frakklands, nánar tiltekið héraðinu Cotes de Rousillon, og blanda af dæmigerðum Miðjarðarhafsþrúgum: Syrah, Grenache, Carignan og Mourvédre.

Víndómar

Fyrir tæpum aldarfjórðungi, nánar tiltekið árið 1984, ákvað Olivier Leflaive að slíta sig frá fjölskyldufyrirtækinu Domaine Leflaive og hefja framleiðslu á vínum undir eigin nafni. Þetta var stórt skref, enda Domaine Leflaive með virtari framleiðendum í Bourgogne. Hann hefur hins vegar haslað sér völl sem hágæðaframleiðandi.

Víndómar

Chateau la Fleur Maillet er lítið vínhús í Pomerol í Bordeaux og eru ekrur vínhússins einungis í 400 metra fjarlægð frá þekktasta vínhúsi svæðisins, goðsögninni Pétrus. Það hefur verið fáanlegt hér í all nokkur ár og gefur yfirleitt mjög mikið fyrir peninginn.

Víndómar

Þegar bestu vín Ítalíu eru flokkuð eru yfirleitt þrjú vín sem skara fram úr og teljast vera í algjörum sérflokki: Brunello, Amarone og Barolo. Hið síðastnefnda kemur frá Langhe-svæðinu í Piedmont í norðausturhluta landsins og er framleitt úr þrúgunni Nebbiolo.

Víndómar

Brunello-vínin sem ræktuð eru í grennd við þorpið Montalcino suður af Siena í Toskana eru einhverjir helstu aristókratar ítalskrar víngerðar. Brunello er í raun sama þrúgan og sú sem nefnd er Sangiovese víðast hvar í Toskana en á þessu svæði eru skilyrði hennar tiil ræktunar hvað best.

Víndómar

Vínhúsið Bodegas Roda er að finna í norðvesturhluta Rioja á því sem undirsvæði sem nefnt er Rioja Alta. Fyrirtækið var stofnað af Mario Rottlant í Katalóníu árið 1987 en þess má geta að hann hefur lengi verið meðal stærstu innflytjenda Spánar á íslenskum saltfiski.

Víndómar

Vidal-Fleury er þekkt vínhús í Rhone, sem á frægð sína að þakka vandaðri víngerð en einnig því að Thomas Jefferson mun hafa heimsótt vínhúsið í Frakklandsferð á átjándu öld.

Víndómar

Lamadoro kemur frá saman vínhúsi og Feudo di San Marzano, það er eitt vínanna úr smiðju Valentino Sciotti. Þetta er Primitivo frá Púglía í Suður-Ítalíu og sýnir hvað það svæði á gífurlega mikla möguleika í samkeppni við Nýja-heiminn með því að beita nútíma aðferðum við víngerð.

1 40 41 42 43 44 57