Lamadoro Primitivo 5l kassi
Kassavínin vinsælu eða vínbeljurnar eru yfirleitt þrír lítrar. Þessi suður-ítalska belja frá Púglíu er hins vegar hvorki meira né minna en fimm lítrar.
Kassavínin vinsælu eða vínbeljurnar eru yfirleitt þrír lítrar. Þessi suður-ítalska belja frá Púglíu er hins vegar hvorki meira né minna en fimm lítrar.
Osborne er líklega þekktast fyrir nautið – Toro de Osborne – sem er merki fyrirtækisins og má víða sjá risavaxin slík þegar keyrt er um sveitir Spánar.
Terlano er svæði í norður-ítalska héraðinu Alto-Adige. Það gengur einnig undir nafninu Suður-Týról og af sögulegum ástæðum er þýska mikið notuð en þetta Alpahérað deilir landamærum með Austurríki. Á þýsku heitir svæðið Terlan.
Hvítvínið Layers frá Peter Lehmann í Ástralíu er blanda úr fimm þrúgum, Sémillon, Chardonnay, Pinot Gris, Gewurztraminer og Muscat en þrúgurnar koma frá héruðunum Barossa og Adelaide í Suður-Ástralíu.
Ferrari-freyðivínin frá Trentino á Norður-Ítalíu eru yfirleitt talin einhver þau bestu á Ítalíu. Guilio Ferrari stofnaði víngerðarina árið 1902 og frá upphafi voru öll vínin framleidd með hinni hefðbundnu kampavínsaðferð, sem byggist á því að kolsýrugerjunin á sér stað á flösku.
Berfættu vínin frá Barefoot Wines í Kaliforníu hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum á síðustu árum. Konseptið er einfalt. Létt og svolítið flippuð framsetning, einföld en vel gerð vín, mjög lágt verð. Barefoot hefur verið valið vínvörumerki ársins í Bandaríkjunum og sum vínanna fengið ótrúlega háar einkunnir í virtustu vínmiðlum miðað við verð.
Chateau Saint Cosme er vínhús í Rhone-héraðinu í Frakklandi með langa sögu. Höfuðvígi Saint Cosme er í þorpinu Gigondas, nágrannaþorpi Chateauneuf-de-Pape, og Barruol-fjölskyldan hefur stundað þar víngerð frá fimmtándu öld.
Vínin frá Drostdy Hof í Suður-Afríku hafa löngum verið með öruggari kaupum í ódýrari verðflokkum en þetta Chardonnay er með þeim betri sem frá þeim hefur komið.
Berfættu vínin frá Barefoot Wines í Kaliforníu hafa slegið í gegn í Bandaríkjunum á síðustu árum. Konseptið er einfalt. Létt og svolítið flippuð framsetning, einföld en vel gerð vín, mjög lágt verð. Barefoot hefur verið valið vínvörumerki ársins í Bandaríkjunum og sum vínanna fengið ótrúlega háar einkunnir miðað við verð.
Bouchard-Pére er sögufrægt vínhús í Búrgund og Chambolle-Musigny er með þekktustu þorpunum á svæðinu Cote-de-Nuits. Líkt og fleiri dæmi eru um á þessu svæði skeyttu þorpsbúar nafni þekktustu ekru sinnar, í þessu tilviki Musigny, saman við þorpsnafnið.