Leitarorð: Víndómar

Víndómar

Árgangurinn 2007 var einn sá besti sem framleiðendur í Rhone-dalnum í Frakklandi hafa nokkru sinni upplifað. Lýsingarorðin sem notuð eru um hann eru frá því að vera hástemmd yfir í yfirdrifin. Það breytir ekki því að þetta er árgangur sem á sér varla sinn líka og jafnvel einföldustu vín svæðisins voru afbragð.

Víndómar

Kientz-fjölskyldan frá þorpinu Blienschwiller er nýjasta viðbót Alsace-vína í vínbúðunum.Blienschwiller liggur nokkurn veginn mitt á milli borganna Strassborgar og Colmar og er því í hjarta vínræktarsvæðisins.

Víndómar

Nafnið á þrúgunni Gewurztraminer vísar til þess að þetta er með arómatískari þrúgum og angan hennar yfirleitt krydduð. Hún er eiginlega hvorki hvít né rauð heldur bleik á lit. Vínin eru þó alltaf hvít þar sem liturinn kemur úr hýðinu en ekki berjasafanum, sem notaður er í víngerðina.

Víndómar

Vínin með fuglamyndunum frá Hardy’s voru einhver fyrstu áströlsku vínin sem hér sáust fyrir einum tveimur áratugum síðan. Hardys-vínin hurfu síðan af markaðnum um skeið en eru nú komin aftur.

Víndómar

Caldora er eitt stærsta vínsamlagið í Abruzzo-héraðinu á Mið-Ítalíu. Alls rækta bændurnir sem standa að samlaginu vín á um 1.200 hektörum. Einungis vín af 200 bestu hektörunum eru hins vegar seld undir nafninu Caldora og eru þau gerð af Mario Ercolino, sem er einn af stjörnuvíngerðarmönnum Ítalíu.

Víndómar

Swartland í Suður-Afríku er svæði sem við höfum ekki séð mikið af hér á landi til þessa. Þetta víngerðarhérað er í um 50 kílómetra fjarlægð norður af Höfðaborg, heitt og þurrt.

Víndómar

Montepulciano d’Abruzzo er heiti vína úr þrúgunni Montepulciano sem framleidd eru í héraðinu Abruzzo, í þessu tilviki af Caldora, einu stærsta vínsamlagi svæðisins.

Víndómar

Þessi Sangiovese kemur frá svæðinu Terre di Chieti sem er í héraðinu Abruzzo suður af Toskana og er Caldora eitt af stærri vínsamlögunum á því svæði.

1 28 29 30 31 32 57